Skömmu síðar steig Ståhl á sviðið og setti nýtt mótsmet. „JÁÁÁ JÁÁÁ JÁÁÁ. HANN SETUR HEIMSMEISTARAMÓTSMET. DANIEL STÅHL. HANN ER ÓÓÓTRÚLEGUR. HANN ER ÓÓÓTRÚLEGUR!“
Eiður Smári Guðjohnsen var í fyrsta skipti í hlutverki aðstoðarþjálfara á Laugardalsvelli í gærkvöldi og sonur hans Andri Lucas kom inn á í fyrsta sinn með landsliðinu. Hann fékk koss við tilefnið! 😘
Oft talað um að öll þjóðin sé á bakvið strákana okkar, það staðfestist hér með.
99,6% hlutdeild á meðan leik stóð, sem þýðir í raun og veru að nánast ALLIR sem voru með kveikt á sjónvarpinu sínu voru með stillt á leikinn.
Við svörum ákallinu. Fundum spóluna og hér er það📺 Einar Þór Daníelsson að koma
@KRreykjavik
í 1-2 gegn Stjörnunni, 11. júlí 1996. Er þetta fallegasta mark í sögu efstu deildar karla?⚽️
Stórkostlegt afrek hjá Sveindísi: lykilmaður í liði Þýskalandsmeistaranna, á sínu fyrsta tímabili, í einni sterkustu deild Evrópu aðeins tvítug að aldri.
Hvað gerðist?! Augnablikið þegar Elias Ellefsen á Skipagøtu tryggði Færeyjum sitt fyrsta stig á stórmóti. Algjört gæsahúðar augnablik. Norðmenn leiddu með tveimur þegar tuttugu sekúndur voru eftir 🇫🇴
Pétur, fjórir Íslandsmeistaratitlar hjá þér og Valskonum á síðustu fimm árum. Ætlarðu að halda áfram og taka einn í viðbót? „Ég ætlaði að svara þessari spurningu úti í Albaníu en það bara kom enginn fréttamaður. Hvorki frá RÚV né öðrum.“
Óskar og Arnar takast á í Stofunni 🇩🇪
„Ég sleppti rútunni í þetta skiptið. Enda enginn illa lyktandi ljóslaus búningsklefi hér eins og í Víkinni“ - Óskar
„Við getum alveg hist og fengið okkur vínglas saman og rætt fótbolta, er það ekki?“ - Arnar
Falleg stund þegar Haukur Þrastarson skoraði sitt fyrsta mark á stórmóti gegn heimsmeisturum Frakka! Hann kom inn í liðið í dag ásamt
@OdinnTHR
þegar
@aronpalm
og
@ArnorGunnarsson
fóru út vegna meiðsla.
#hmruv
„Sagan er ekki bara þinn líftími“ sagði Ólafur Kristjánsson við Gunnar Birgisson þegar sá yngri sagði að hugsanlega væri mögulegi á stærsta knattspyrnuleik í sögunni ef Argentína og Portúgal mætast í úrslitaleik HM í Katar
ÓTRÚLEGAR lokasekúndur í venjulegum leiktíma í leik Þýskalands og Frakklands í 8-liða úrslitum! 0,1% líkur segir Höddi Magg, ég skal sýna þér 0,1% líkur segir Renars Uscins😱🤯
EM í fótbolta hefst á RÚV 14. júní! ⚽
Óskar Hrafn Þorvaldsson og Arnar Gunnlaugsson hafa eldað grátt silfur saman á fótboltavellinum en verða á meðal sérfræðinga í EM Stofunni 🥵
🎙️ERUÐ ÞIÐ EKKI AÐ GRÍNAST??🎙️ Tilþrif kvöldsins átti hin hollenska Femke Bol með endaspretti sem á eftir að sjást í endursýningum í sjónvarpi um ókomna tíð. VÁ!! 🏆🥇⚡️📺
Jökull Andrésson fór á kostum í viðtali eftir leik.
- „Þetta er eins og nammi“
- Backlash frá Mosfellingum
- Mættir til að vinna Bestu
- „Ætla að fá mér nokkra bjössa“
Algjörlega ótrúlegar lokasekúndur í leik Þróttar R. og Selfoss í 8-liða úrslitum CocaCola bikars karla í handbolta. Selfoss skoraði sigurmarkið í 27-26 sigri á síðustu sekúndunni.
Þú ert 10 mörkum yfir í hálfleik. Hvað gerirðu í seinni hálfleik? Við gefum Stefáni þjálfara Hauka orðið. 🎙️„Þetta er bara eins og þú hafir keypt ís með dýfu. Dýfan er búin en við eigum eftir að klára ísinn.“ Takk fyrir Stefán.
Sif Atladóttir missti föður sinn, Atla Eðvaldsson sama dag og Ísland mætti Slóvakíu í síðasta mánuði. Við settumst niður með Sif í Lettlandi í dag þar sem Sif opnaði sig um föðurmissinn. Sýnt verður úr viðtalinu í íþróttafréttum kl. 19:40 í kvöld og á .
Þið heima í stofu verðið líka að vera fókuseruð og það er bannað að ná í snakk á 50. mínútu. Kveðja, Ólafur Stefánsson.
Eru ekki allir annars búnir að stilla inn á RÚV? Leikurinn hefst 14:30.
Logi Ólafsson bauð upp á alvöru „commentator's curse“ í fyrsta markinu.
„Við sjáum lítið til manna eins og Arons Elís og Matthíasar. Þarna er nú Matthías kominn..."
Logi Sigurðsson var að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn þrátt fyrir skolla á átjándu holu⛳️Hlynur fékk þar par og Logi sigrar því með eins höggs mun, á 11 höggum undir pari🏆
Vá! Adolf Daði með alvöru mark. Flikkflakk og vippa. Hágæði, lífshætta. Hann kláraði leikinn endanlega fyrir Stjörnumenn sem fóru áfram í átta liða úrslit🪄
Nadía Atladóttir, fyrirliði Víkings átta magnaðan leik á Laugardalsvelli í kvöld. Skoraði tvö mörk og leiddi sínar konur til sigurs. Við ræddum við Nadíu strax að leik loknum.
Arnar og Hjörvar eru ekki alveg sammála um ágæti
Ralf Rangnick landsliðsþjálfara Austurríkis.
🎙️Arnar „Þvílík upprisa hjá einum manni..“
🎙️Hjörvar „Hann er svona fyrirlesari.“
🎙️Arnar „Nei nú ertu farinn að kvóta í einhverja svona..“
🎙️Hjörvar „Cristiano Ronaldo já.“
MARK - FH er komið yfir og allt stefnir í að FH fari í úrslitaleikinn á móti Víking - Davíð Snær Jóhannsson með svakalegt skot og mark og leiktíminn er að renna út
Óskar Hrafn, Hjörvar Hafliðason og Hörður Magnússon tókust á um níur og Cristiano Ronaldo. Hjörvar mætti vopnaður lista📋
„Þú getur alveg dregið andann. Þetta er allt í lagi. Andaðu bara,“ - Kristjana
EM karla í fótbolta hefst á föstudaginn og sérfræðingarnir verða með okkur fyrir og eftir alla leikina!
⚽ Arnar Gunnlaugsson
⚽ Óskar Hrafn Þorvaldsson
⚽ Hjörvar Hafliðason
⚽ Adda Baldursdóttir
⚽ Hólmar Örn Eyjólfsson