Ég er mjög hreykinn af blaðinu okkar í dag, en við lögðum forsíðuna alla undir þessa mögnuðu mynd Árna Sæberg af ósköpunum í Grindavík. Þar fyrir utan voru 8 síður í blaðinu lagðar undir hamfarirnar, með fréttum, frásögnum, skýringarkortum, viðtölum, ótal ljósmyndum og fleiru.