Að fara til Brasilíu og meika það sem eiturlyfjabarón þar er ekkert minna en mesti árangur íslendings í viðskiptum síðan á landnámsöld. Sverri heim og fálkaorðu á manninn.
#Svartur
áleik
Þegar þjóðþekktir einstaklingar þegja, læka í laumi, klappa á bak fræga gerandans og eða óttast um eigin hag, þá skilur maður smá hversu erfitt og ógnvekjandi það er fyrir þolendur að stíga fram.
Þetta er vígvöllur, ekkert annað.
Milljón $ hugmynd fyrir næstu kjarasamninga:
Launþegar fái frí á afmælisdaginn sinn.
Beri afmælið upp á laugardag, er frí á föstudag á undan. Mánudag á eftir, beri afmælið upp á sunnudag.
RT ef þetta er góð hugmynd!
Stíflaður vaskur í þvottahúsi. Banka hjá nágrannakonu og bað hana að lána mér drullusokk. Um leið og hún réttir mér hann segir hún, "hann heitir Jón Baldvin."
*mic drop
Hvernig væri að byrja á að borga erlendu starfsfólki mannsæmandi laun áður en við heimtum að þau tali Hávamál við okkur þrælahaldarana? (Já, ég fékk mér kaffi í morgunmat!)
Þriðji og síðasti bróðir mömmu minnar var að deyja. Pabbi hringdi í mig með grátinn í kverkunum. Þetta var gamall maður og allt það. En ég grét því dauðinn er kominn svo nærri foreldrum mínum. Þau hugsa eflaust það sama. Lífið er dýrmætt og stutt ❤💔
Ég vorkenni fólki sem býr í höfuðborginni en er ekki utan af landi. Að geta ekki heimsótt gamla heimabæinn, hitt gamla kunningja og vini og njóta æskustöðvanna. Ég get ekki ímyndað mér lífið án þessarar tengingar.
Ég á varla orð til að lýsa aðdáun minni á starfsfólki Dalslaugar í Úlfarsárdal. Þau taka eftir eldri manni sem gerir sér far um að tala við unga drengi, kortleggja mætingar hans, komast að því að hann er dæmdur barnaníðingur og koma í veg fyrir að hann brjóti gegn drengjunum.
Hvað gera rithöfundar? Það er mjög misjafnt. Í dag var ég til dæmis að búa til vaktaplan fyrir fjóra lögreglumenn sem eru ekki til og þurfa því aldrei að mæta í vinnuna. En fá samt frívaktir og svona.
Ökuskírteini í farsíma er alveg fínt. En það skiptir engu einasta máli.
Ég hrósa ekki stjórnmálamanni fyrr en hann gerir eitthvað sem skiptir máli.
Eins og að koma í veg fyrir brottvísun á barnafjölskyldu á flótta – fjölskyldu sem er búin að festa hér rætur.
Ég var að bera dót inn í Góða hirðis gáminn í Sorpu þegar ég sá inn í skottið á jeppa hjá konu einni sem var þarna í sömu erindum. Í skottinu voru meðal annars bækur eftir undirritaðan.
"Þú ætlar þó ekki að láta mig horfa á þig henda bókunum mínum," segi ég við konuna.
1/2
Mér finnst mjög ósmekklegt af að birta mynd af vettvangi banaslyss þar sem björgunaraðilar eru að störfum og fórnarlömb blörruð. Helvítis clickbait ógeð.
Vitiði hvað íslendingar eru? Hrokafullir, frekir og heimskir. Við höldum að við vitum allt og getum allt. En hlaupum alltaf á vegg og förum að væla. Fyrir 500 árum voru borgir og menning víða um heim. Fyrir 100 árum vorum við kvefaðir kotbændur korter í dauða.
Hvað hafa margir tekið sitt eigið líf frá áramótum?
Hversu margar konur í óvissu og jafnvel lífshættu vegna klúðurs í skimunum?
Hversu marga blaðamannafundi er búið að halda vegna þessa?
Einhver minnisblöð? Áætlun um aðgerðir?
Ég held að aðal vandamálið með íslenska veitingastaði sé að þeir eru yfirleitt ekki stofnaðir af kokkum heldur fjárfestum. Skrilljón eytt í andlausa hönnun og svo er ráðinn kokkur, sem hættir svo af því að eigandinn er asni. Svo er ráðinn verri kokkur og ódýrir þjónar.
Eurovision snýst ekki um pólitík. Ekki um tónlist heldur. Eurovision snýst um að Gísli Marteinn, Felix Bergsson og co fái að fara einu sinni enn með "íslenska hópinn" út og fái að hafa gaman í friði og á kostnað skattgreiðenda. Sýnið smá skilning 🙏
Neyddist til að hlusta á kaffipervert tala endalaust um gæði og guðdómleika kaffibauna frá Guatemala.
Þegar hann loksins þagnaði spurði ég hvort þær væru Guatemalaðar?
Ég fékk ekki að smakka kaffið. 😞
Það sem ég segi: Ég ætla að leggja mig í nokkrar mínútur.
Það sem krakkarnir heyra: Hvernig myndi það hljóma ef fílahjörð á kókaíni stofnaði lúðrasveit?
Ég get ekki hætt að dást að því hvað dagskráin hjá milljarðamaskínunni RÚV er léleg. Skattgreiðendum boðið upp á rusl laugardagskvöld eftir laugardagskvöld.
Hvernig væri að stjórnvöld brýndu fyrir fólki að það er BANNAÐ að skjóta upp flugeldum nema á GAMLÁRSKVÖLD og á ÞRETTÁNDA.
Helvítis fokkings fokk...
Kveðja frá pirruðum hundapabba (tíkin hætt að þora út að pissa og kúka, byrjar á sterkum róandi lyfjum í kvöld)
Fyrsta tap ársins: Gleymdi að slökkva á vekjaranum áður en ég fór að sofa.
Fyrsti sigur ársins: Fór á fætur og byrjaði á nýrri bók.
Drottinn blessi kaffið.
Af hverju snúast fréttir á Íslandi af kórónaveirunni um tap í ferðamannabransanum en ekki um þá hættu sem steðjar að ungbörnum og gömlu fólki, ef veiran berst til landsins?
Hlutir sem Reykjavíkurborg gerir vel:
Skuldir
Biðlistar
Umferðarstíflur
Jafnréttisskrifstofur
Fjölga innivinnandi starfsfólki með háskólagráður
Tæma ekki rusl
Gera svona lista og setja í nefnd
Fyrir 14 árum bjó ég til persónu sem heitir Hörður Grímsson. Eða var hann alltaf til? Anyhow. Í dag er Hörður Grímsson án efa vinsælli en ég, frægari en ég og ef til vill raunverulegri en ég. Alla vega í huga lesenda. Lífið er mjög skrýtið, stundum. Eða alltaf.
11. janúar. Enn verið að sprengja á fullu. Í hvað, 15. daginn í röð? Hundurinn á heimilinu farinn á taugum og þorir varla út í garð að pissa, hvað þá meir. Nokkrir hundar týndir, eflaust kettir og hross líka.
Svo skemmtileg "áramóta"-hefð
Eitt skil ég ekki alveg. Það er mjög erfitt að eignast íbúð. En svo virðist sem allir sem kaupa íbúð byrji á því að HENDA ÖLLU ÚR HENNI OG KAUPI ALLT NÝTT. Hvaða sturlun er það? Fyrir utan að gamalt er yfirleitt betra en nýtt, t.d. Rafha vs spanhelludraslið.
Í hvaða landi eða löndum er hinn dásamlegi sósíalismi við völd? Er að spá í að smala íslenskum sósíalistum í flugvél og senda þau þangað, svo að þau geti loksins notið lífsins í friði fyrir okkur heimsku skrímslunum.
Það sem við sitjum uppi með er
Kvíði
Þunglyndi
Vanlíðan
Og margir missa vonina og taka sitt eigið líf.
Staðreynd.
En stjórnvöld minnast aldrei á þessar tölur, á þessi mannslíf.
💔
Steig á vigtina í Vesturbæjarlaug áðan. Fékk smá sjokk í fyrstu. En fattaði svo að ég átti eftir að draga frá 11 kg (sundskýla og töflur). Er búinn að jafna mig núna.
Ég elska bíómyndir. En hata kvikmyndahús. Orkuverð og sama verð fyrir stærsta sal og hitt draslið. 20 mínútur af fokkings sjónvarpsauglýsingum, klukkan orðin korter yfir sýningartíma og svo hlé. Og fólk í símanum. Omg.
Hækkaðar álögur á hluti eins og áfengi, tóbak og eldsneyti er LÁGTEKJUSKATTUR vegna þess að verð á bensíni og bjór skiptir fólk með háar tekjur engu máli. Svo hefur það líka efni á að eiga rafmagnsbíl.
Sagan á bak við hljómsveitarnafnið:
„Hvað með að kalla okkur bara sjónvarp?"
„Góð hugmynd. En það er til hljómsveit sem heitir Television."
„Alveg rétt. En sími?"
„Hm. Því ekki?"
#Ens
ími
A few months ago I published my first books in the USA. Sales are on the rise and the publisher wants to buy the fourth book in my crime series.
#WritingCommmunity
#Gr
ímsson
#Iceland
🙏❤
Þegar ég lít í spegillinn á morgnana: "Guð. Minn. Góður."
Halldór Benjamín: "Þetta er flott. Ég ætla að vera svona í dag."
Ég vona að ég öðlast þennan innri frið einn daginn 🙏
Eini sinni auglýsti frænka mín eftir hjálp við flutninga á Facebook.
@hjammi
mætti, þó að hann þekkti hana ekki neitt. Hann fékk feitt prik í kladdann hjá mér og ég hef haft mikið álit á honum allar götur síðan.
Kolgrímur Máni, sonur minn og föðurbetrungur, varð í 2. sæti í smásagnakeppni á ensku á landsvísu fyrir söguna The Reflection. Frú Eliza Reid afhenti verðlaunin nú síðdegis. Sagan er að sjálfsögðu hryllingssmásaga 🥰🏆
Að grínast með krossfestinguna er allt í lagi, enda búum við við tjáningarfrelsi, einhver móðgast en enginn verður drepinn. En prófið endilega að grínast með íslam og Múhammeð spámann. Ekki? Ókei, ég skil. Einhver yrði drepinn, ekki satt?
Þegar ég var á leikskóla þá var það í rauninni bara lokaður róló. Við fórum aldrei inn, það var ekkert hús. Við komum með nesti að heiman og borðuðum það inni í svona stórum steypurörum. Við pissuðum þar líka.
Mér líður eins og ég heiti John Steinbeck Þegar ég skrifa þetta.
Pælið í því ef það væri einhver gaur á Englandi sem klæddist hvítri treyju ár eftir ár, með ÍBV fána uppi á vegg og ÍBV könnu í vinnunni sem hlypi svo út á götu eitt haustið og tilkynnti öllum að hann væri loksins orðinn íslandsmeistari. Hvað er síminn hjá Will Ferrel?
Að banna fyrirliðum að lýsa yfir stuðningi við hinsegin fólk er ekki bara illska og ógeðslegur undirlægjuháttur heldur fyrst og fremst vatn á myllu þeirra sem hata hinsegin fólk og vill helst berja það, svívirða og drepa. Djöfulsins heitasta helvíti. Góðan dag.
Vissuð þið að maður getur valið um að bíða endalaust eftir nauðsynlegri aðgerð eins og mjaðmaskiptum eða borgað 150 þús til að komast fyrr að? Það búa samt ekki tvær þjóðir í þessu landi....
Spurning úr sal. Var það sem sagt ákvörðun Gísla Marteins en ekki RÚV að hann lýsti Eurovision í öll þessi ár? Og þegar honum hugnast ekki að lýsa keppninni, þá getur hann bara ákveðið að gera það ekki og RÚV verður þá að finna einhvern annan? RÚV er sannarlega rekið af staffinu
Ég er búinn að vera mjög jákvæður í Janúar, og langar alveg að halda því áfram. En ég nenni samt ekki meðvirkni. Að því sögðu....
Heimildin er ekki gott nafn á fjölmiðli.
Ég hef raunverulegar áhyggjur af störfum
@logreglan
á Íslandi.
Fólk hefur slasast og dáið í meðferð/í vörslu hennar. Oft mikið óþarfa ofbeldi/fantatök.
Útigangsfólk og/eða "dópistar" fá enga eða 2. flokks meðferð.
Dagbók lögreglu einkennist oft af fordómum og illkvittni.
Jákvæður febrúar 😊❤️ Var með fyrirlestur í dag í HR þar sem ég talaði um glæpasögur, sjálfan mig og það að vera rithöfundur.
Nemandi: "Ég er ekki að segja að þú sérst gamall eða eitthvað en ertu búinn að gera ráðstafanir varðandi höfundarverk þitt eftir að þú deyrð?"
Ég: 💀🖤
Svona fyrir utan félagsskap og kannski stemmingu, þá eru jólahlaðborð ofmetnasta út að borða sem er í boði. Overpriced mötuneyti með jólaskrauti. That said, verði ykkur að góðu ❤️
Sumt fólk er larger than life týpur. Það er bara þannig. Gaurinn til hægri á myndinni er einn af fáum útvöldum. Þetta er Atli Steinn Guðmundsson, blaðamaður á Mogganum, búsettur í Noregi. Þráður...
Fyrir 2 árum byrjaði ég að skipta út SS pulsum fyrir vegan pulsur. Fyrir ári kjötborgurum fyrir vegan borgara. Núna er það oumph í staðinn fyrir kjúkling.
Af því að mér finnst það betra, í alla staði.
Sá þetta ekki fyrir.
Mig langar að skrifa svona Da Vinci Code bók sem gerist á Íslandi. En veit ekki alveg um hvað hún á að vera. Er samt búinn að punkta hjá mér "Kiwanis" og "leynisósan á Hlöllabátum". Þetta verður eitthvað.
Íslenski tónlistarferils-hraðallinn:
1) gera vinsælt lag
2) koma fram í Vikunni
3) leika í Cheerios auglýsingu
4) koma fram sem gestur á jólatónleikum
5) fá vinnu á RÚV
Í Rómaveldi til forna þóttu ofnbakaðar kartöfluskífur með rjóma og osti hinn mesti herramannsmatur. Þeir sem kunnu ekki að elda þennan uppáhaldsrétt höfðingjanna voru úrskúfaðir og kallaðir persona non gratin. Var það hin mesta háðung.