Vá, snarpur jarðskjálfti sem ég var að finna á höfuðborgarsvæðinu. Best að fara á Vísi til að kanna hvort snarpur jarðskjálfti hafi ekki fundist á höfuðborgarsvæðinu
Kæru vinir, sólin rís í Reykjavík og það er komið að upphafsdegi míns nýja miðils. Það fyrsta sem blasir við er flaggskipið sjálft, fréttir vikunnar. Sá þáttur siglir af stað sneisafullur af svívirðingum í allar áttir en líka áríðandi pólitískum skilaboðum á ákveðnum sviðum. Hann
Ómíkron komið til landsins og farið að dreifa sér en fólk mun samt kalla eftir að landamærum verði lokað. Eitthvað sem þótti sturluð pæling fyrir 2 árum en mörgum finnst léttvægt í dag.
Stjórnvöld deildu í síðustu viku með okkur tölfræði um málefni hælisleitenda hér á landi á árinu 2022, fyrir utan Úkraínuflóttamenn, þar sem sjá má að Íslendingar samþykktu næstum þrettánfalt fleiri umsóknir um alþjóðlega vernd á því ári en Danir og Norðmenn.
Ritstjórinn deildi
Þegar ég vann í stóru fjölmiðlunum kenndi maður sér það sjálfur og lærði það af öðrum að ganga helst aldrei lengra en sem nam línunni frá CNN, BBC, NYT o.s.frv. Þannig var maður öruggur um að taka ekki þátt í illkynja upplýsingaóreiðu. Bæði atburðarásin í dag, lygarnar um ástand
Morgunblaðið telur væntanlega að Trump eigi erfitt með mikinn hávaða og því hafi blætt úr eyrum hans og það hafi þurft að vísa honum af sviðinu.
Hvaða trúðar eru að skrifa fréttir beint eftir erlendum miðlum hér á Íslandi? Enginn meginstraumsmiðill hér með kommon sens?
Margir hafa viljað gera demókrata og miðla þeirra ábyrga fyrir þessari árás í ljósi þeirrar herferðar sem hefur verið keyrð gegn Trump á undanförnum árum. Maður tekur því þó með fyrirvara þegar einhverri orðræðu er kennt um að brjálæðingar skuli taka skotvopn og myrða saklaust
Fólk bregst vart við „kynjaða skuldabréfinu“ öðruvísi en að gera grín að því. Á þessu stigi er enda orðið pínlega augljóst hve öllum sem að þessu standa er sama um það hvort aðgerðin muni hafa tilætluð áhrif. Þetta er alfarið spurning um ímynd – og við borgum fyrir leikritið...
Tveir mánuðir í dag tóbakslaus. Lengsta sem ég hef farið síðan 2012 og það hvarflar ekki að mér að snerta tóbak aftur á ævi minni. Sígarettur eða lummur eru ekki góðar eða næs eða kósý eða róandi – það eina sem þær gera er að kalla á þá næstu. Og þá næstu. Þetta er hægt
Ég sé að Jafnréttisstofa hefur, með sérstökum stuðningi forsætisráðuneytisins, hleypt af stað sérstöku átaksverkefni, Orðin okkar, þar sem Íslendingar eru hvattir til að kæra samborgara sína í auknum mæli ýmist til lögreglu eða kærunefndar jafnréttismála, telji menn sig hafa
Ótrúlegt bréf frá einum valdamesta manni heims
Fólk sem hefur áhyggjur af tilhneigingu stjórnvalda til að ritskoða fjölmiðlun í gegnum samfélagsmiðla (áhyggjur sem nú eru stundum kenndar við „öfgahægri“) hefur hingað til yfirleitt átt erfitt með að bera fram óyggjandi sannanir
Þrýstingurinn á fólk til að breyta tungumáli sínu hefur hingað til ekki birst okkur í beinum skipunum, heldur sem mjúkt vald, þar sem Ríkisútvarpið útvarpar réttu máli og þegnarnir taka við sér. Nú sjáum við þetta hins vegar í formi beinna skipana og það til mjög ungs fólks.
Meira að segja krakkarnir í Laugalækjarskóla eru búnir að fatta að list skal ávallt bera réttan hugmyndafræðilegan boðskap. RÚV flytur þessi fyrirmæli kerfisbundið, en Borgarleikhúsið hefur greinilega enn ekki tekið við sér.
Hot take: Podköst eru með því leiðinlegasta sem ég veit. Ef mig langaði að hlusta á tvo dudebros tala í klukkutíma um shit sem þeir hafa næstumþví hálfpartinn þekkingu á þá myndi ég einfaldlega hanga meira með vinum mínum eftir svona 3 - 4 bjóra.
Hér með tilkynnist að þessi uppfærsla á fylgjendum mínum var sú síðasta. Nú hafa leiðir skilist á milli mín og þessa sjálfvirka búnaðar, en ég þakka samfylgdina.
Maður var aðallega bara að læra um stærðfræði, málfræði, Íslandssögu í skólanum í gamla daga. Síðan varð einhver róttæk breyting.
Kannast þú við forréttindapýramída Reykjavíkurborgar?
Ég er sammála Sigríði Hagalín um að kynjamálið ógni ekki íslenskri tungu sem slíkri. Sú fullyrðing er þó léttur strámaður, enda hefur „ógn við tunguna“ alls ekki verið eini punktur þeirra sem gagnrýna kynjamálið hingað til. Umræðan hefur einnig að töluverðu leyti snúist um
Lagaði þetta fyrir ykkur
@RUVfrettir
. Sóttvarnalög nota ekki hugtakið „einkenni“ (eða einkennalaus) heldur hugtakið „smitaður“. Af : "Whether or not they have symptoms, infected people can be contagious and the virus can spread from them to other people."
Mér skilst að Rithöfundasambandið geri engar athugasemdir við 20 manna samkomubann, enda ætti það ekki að hafa nein áhrif á upplestrarkvöld á aðventunni
Ok, það á að hætta með einangrun og sóttkví, það var 3. fréttin á Rúv og ég sé engan tala um þetta. Lét mögulega þá setningu falla hér heima við rétt í þessu að við værum orðin eins og fangarnir í Shawshank, innst inni þráum við bara rimlana því við þekkjum orðið ekkert annað.
Ef kennarinn er róttækur aktívisti með mjög byltingarkenndar hugmyndir, hljóta foreldrarnir auðvitað hægt og rólega að fara að gauka því að börnum sínum að taka því með nokkrum fyrirvara sem kennarinn segir í skólanum...
Illa vegið að góðum manni
@Auddib
.. raunar ógeðslegt að Hjörvar sé að nota sinn platform í hatursorðræðu! Vill svo til að Auddi mælti örfá sönn orð um
@hjorvarhaflida
í Skoðanabræðrum í gær.. Hjörvar er að vísu líka góðvinur hlaðvarpsins
Ölgerðin er „fyrsti hinseginvæni vinnustaðurinn“ í nýju vottunarkerfi Samtakanna 78. Var vinnustaðurinn þá óhinseginvænn þar til hann borgaði fyrir vottunina?